BYKO mótið á laugardaginn

Nesklúbburinn

Skráning er nú hafin í BYKO mótið sem fram fer á Nesvellinum á laugardag.  Leiknar verða 18 holur eftir punktafyrirkomulagi og verða veitt verðlaun fyrir efstu fimm sætin.  Einnig verða veitt verðlaun fyrir besta skor án forgjafar.  Hægt er að skrá sig á golf.is fram til klukkan 18.00 á föstudag.