Á morgun, 17. júní verður til sölu fatnaður merktur Nesklúbbnum (með NK logó-inu). Um er að ræða kjarakaup þar sem að það er bara ein flík í hverri stærð og því lækkum við verðið svo um munar. Við hvetjum ykkur því til að gera ykkur ferð út á golfvöll í fyrramálið ef þið hafið áhuga – því þetta er einfaldlega fyrstur kemur fyrstur fær. Á meðfylgjandi mynd má sjá hvað í boði er sem og hvað varan kostar.
Athugið að fötin eru eingöngu til sölu í gegnum starfsmann á skrifstofu.