Það gekk ansi mikið grjót yfir völlinn okkar í óveðrinu um helgina. Verst var það á þriðju, fjórðu, og sjöundu braut og þarf að hreinsa það upp áður en það veldur viðvarandi skemmdum. Við leitum því á náðir félagsmanna og biðjum alla þá sem vettlingum geta valdið um að leggja til hendur. Við ætlum að skipta þessu í tvo hópa, annarsvegar klukkan 10.00 í fyrramálið og hinsvegar klukkan 17.00. Mæta bara út á golfvöll, niður í vélageymslu og þetta ætti ekki að taka langan tíma ef margar hendur koma saman.
Vallarnefnd