Kæru NK-Konur,
Nú eru aðeins 3 mót eftir tengt NK konum. Þátttakan í sumar hefur verið mjög góð þrátt fyrir veðrið hafi ekki alltaf leikið við okkur. Klárum sumarið með stæl og fjölmennum á síðustu mótin.
- 5. þriðjudagsmótið er á morgun, þriðjudaginn 30. júlí
- 6.og síðasta þriðjudagsmótið verður haldið þriðjudaginn 13. ágúst.
- Lokahófið veður sunnudaginn 25.ágúst. Ræst er út á öllum teigum kl. 10:00, mæting kl. 09:30 síðan matur að hætti Krissa. Auglýst nánar þegar nær dregur, en takið morguninn frá.
Golfkveðja,
Kvennanefndin