Einvígið á Nesinu á mánudaginn

Nesklúbburinn

Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL, Einvígið á Nesinu, verður nú haldið í 17. skipti á Nesvellinum mánudaginn 5. ágúst nk.  Í ár mun DHL styrkja Dropann, styrktarfélag barna með sykursýki, um eina milljón króna. 

Mótið verður með hefðbundnu sniði, þ.e. klukkan 10.00 leika keppendur 9 holu höggleik og kl. 13.00 hefst svo Einvígið  (shoot-out).  Einn kylfingur dettur út á hverri holu, þar til tveir berjast um sigurinn á 18. holu. 

Venju samkvæmt er 10 af bestu kylfingum landsins boðið til leiks.  Í ár eru systkini á meðal þáttakenda en það eru þau Ólafía Þórunn Kristinsdóttir sem er Íslandsmeistari kvenna í holukeppni og Alfreð Brynjar Kristinsson sem er klúbbmeistari GKG. 

DHL hefur verið styrktaraðili mótsins frá því að það var fyrst haldið árið 1997 og ávallt styrkt félög eða samtök sem láta sér hag langveikra barna varða.  Í ár er það Dropinn – styrktarfélag barna með sykursýki, sem fær eina milljón króna frá DHL. Dropinn hefur verið starfræktur síðan 1995 og er markmið félagsins að stuðla að velferð barna og unglinga með sykursýki, m.a. með sumarbúðum, fræðslu 

Þátttakendur 2013
 

Alfreð Brynjar Kristinsson         GKG    Klúbbmeistari GKG 2013
Birgir Björn Magnússon               GK      Klúbbmeistari GK 2013
Birgir Leifur Hafþórsson              GKG   Íslandsmeistari í höggleik 2013
Björgvin Sigurbergsson               GK      Margfaldur Íslandsmeistari í höggleik
Hlynur Geir Hjartarson                 GOS   Klúbbmeistari GOS 2013
Kristján Þór Einarsson                  GKJ   Klúbbmeistari GKJ 2013
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir        GR     Íslandsmeistari kvenna í holukeppni 2013
Ólafur Björn Loftsson                   NK     Klúbbmeistari Nesklúbbsins 2013
Þórður Rafn Gissurarson              GR     Shoot-out meistari 2012

 Í höggleiknum um morguninn leika einnig tveir kylfingar um síðasta sætið í einvíginu.  Það eru sigurvegarar opinna móta á Nesvellinum fyrr í sumar og eru þeir:

Rúnar Geir Gunnarsson             NK    Sigurvegari Opna Þjóðhátíðardagsmótsins
Nökkvi Gunnarsson                   NK   Sigurvegari Opna Úrval-Útsýn mótsins 

Sigurvegarar frá upphafi

1997      Björgvin Þorsteinsson
1998      Ólöf María Jónsdóttir
1999      Vilhjálmur Ingibergsson
2000      Kristinn Árnason
2001      Björgvin Sigurbergsson
2002      Ólafur Már Sigurðsson
2003      Ragnhildur Sigurðardóttir
2004      Magnús Lárusson
2005      Magnús Lárusson
2006      Magnús Lárusson
2007      Sigurpáll Geir Sveinsson
2008      Heiðar Davíð Bragason
2009      Björgvin Sigurbergsson
2010      Birgir Leifur Hafþórsson
2011      Nökkvi Gunnarsson
2012      Þórður Rafn Gissurarson