Búið að opna boltavélina

NesklúbburinnAlmennt, Póstlistar Full aðild

Kæru félagar,

Það er búið að opna boltavélina fyrir æfingasvæðið.  Hægt er að greiða með greiðslukorti (bara leggja kortið eða símann upp að gula posanum).  Fyrir það fæst ein full fata eða 48 boltar.  Einnig eru hægt að greiða með „solo kortunum“.

Vinsamlegast gangið vel um æfingasvæðið – það er eingöngu heimilt að slá á mottunum í æfingaskýlinu og þ.a.l. alls ekki á grasinu fyrir framan skýlið.