Jæja kæru félagar, nú er þetta að gerast.
Okkar árlegi Hreinsunardagur verður haldinn næstkomandi laugardag sem þýðir að ballið er að byrja og völlurinn mun opna um helgina.
Eins og margoft hefur komið fram að þá hefur þessi dagur verið klúbbnum gríðarlega mikilvægur í gegnum árin. Dugmiklir félagar mæta og skella sér í hin ýmsu störf til að gera völlinn okkar og umhverfi hans bæði betra og fallegra fyrir sumarið.
Fyrir liggja núna fjölmörg verkefni eftir veturinn. Við vonumst því eftir fjölmenni til þess að hjálpa til á milli kl. 10.00 og 12.00 og setjum í sameiningu völlinn okkar í sumarbúning. Hreinsunin sjálf tekur einungis tvo tíma þannig að ef þú átt þann tíma aflögu þá verða hendur þínar svo sannarlega vel þegnar.
* Það þarf að skrá sig til þátttöku á hreinsunardeginum í gegnum golfbox (smella hér). Skráningu lýkur á föstudaginn kl. 12.00
Á eftir hreinsun og gourmet pylsuveislu að hætti Mario verður þeim sem tóku þátt í hreinsuninni boðið að taka þátt í 9 holu golfmóti. Nánari upplýsingar um það koma síðar til þeirra sem skrá sig í hreinsunina.
Hlökkum til að sjá ykkur á laugardagin,
Stjórn Nesklúbbsins

