Reglur vegna nýframkvæmda

NesklúbburinnAlmennt, Póstlistar Aukaaðild, Póstlistar Full aðild

Kæru félagar,
Eins og fram hefur komið að þá var farið í mjög veigamiklar framkvæmdir til þess að verja göngustíginn í kringum völlinn.  Mest er þetta við 7. braut en nær líka til 1., 2. og 3. brauta.Í gær var sáð í þetta allt saman með sérstakri blöndu af fræjum sem á að gera það að verkum að fræin  annars vegar fjúki ekki í burtu og hinsvegar að þetta spíri hraðar. 
Nú er aðalmálið að svæðið fái algjöran frið á meðan þetta tekur sig.  Því er reglan núna þannig að stranglega bannað að fara inn á svæðið þar sem að mold er á þessum brautum.  Það þýðir að ef við sláum boltann inn á moldina að þá er bannað að stíga inn á hana.  Það á alveg jafn mikið við um eitt skref eða fleiri.  Við verðum að taka höndum saman og þá í leiðinni því miður að mögulega fórna einhverjum golfboltum.

Þetta er í raun bara sama regla og gildir um kríuvarpið á 9. braut þegar það er í gildi.  Ef þú ferð inn á þessi svæði að þá eru reglurnar þannig að það eru tvö högg í víti.  Það er alveg sama hvort þú gerir það óvart því allir eiga jú alltaf að kynna sér staðarreglur vallarins hverju sinni.

Tökum höndum saman og hjálpumst að við að passa upp á þetta og ef við verðum vör við einhvern sem ekki kann regluna að leiðbeina viðkomandi.

Staðarreglur vallarins hafa verið uppfærðar hér á heimasíðunni og má sjá með því að smella hér.

Vallarnefnd