Sumarið 2026 mun Nesklúbburinn bjóða þeim einstaklingum sem eru á biðlista í klúbbinn upp á aðgengi að Golfbox. Þetta hentar fyrst og fremst þeim einstaklingum sem ekki eru með slíkt aðgengi. Allt um vöruna má sjá hér neðar og er verð fyrir árið 2026 kr. 25.000 og er innifalið í gjaldinu það aðildargjald sem greitt er til Golfsambands Íslands
Golfbox er það tölvukerfi á Íslandi sem allir kylfingar verða að hafa aðgang að til þess að:
- -Bóka sig sjálfir á rásíma á golfvöllum landsins
- -Skrá skor
- -Halda utan um forgjöf sem uppfærist sjálfkrafa eftir að hring er lokið og skori skilað inn í gegnum kerfið
- -Geta skráð sig í golfmót á Íslandi
- -Tengjast félagi innan raða Golfsambands Íslands
Nesklúbburinn mun fyrir sumarið 2026 bjóða einstaklingum upp á aðgengi að Golfbox að því gefnu að:
- viðkomandi er á biðlista í Nesklúbbinn
- viðkomandi er ekki með aðild að öðrum golfklúbbi á Íslandi
Innifalið:
- Aðgengi að Golfbox sem veitir allt ofangreint
- 3 x 9 holur hringir á Nesvellinum tímabilið 2026
- Fullnýti viðkomandi ekki hringina þrjá fyrnast þeir í lok sumars
- 10% afsláttur af 9 holu golfhring fyrir á Nesvellinum ef bókað er í gegnum Golfbox. Þetta á eingöngu við um þann einstakling sem er með slíka aðild og gildir þannig ekki fyrir aðra gesti.
- 10% afsláttur af fullri körfu á æfingasvæði Nesklúbbsins
- Bókunarfrestur á Nesvöllinn er “daginn áður” eða samdægurs. Daginn áður þýðir að kl. 20.00 í kvöld er hægt að bóka rástíma á morgun
- 10% afsláttur í golfherma Nesklúbbsins í inniaðstöðu klúbbsins sem heitir Nesvellir og er staðsett á Austurströnd 5 á Seltjarnarnesi. Gildir eingöngu ef bókað er í gegnum heimasíðu klúbbsins.
- Aðgengi til að bóka sig rástíma á öllum golfvöllum á Íslandi
- Aðgengi til að bóka sig og taka þátt í öllum opnum golfmótum á Íslandi að uppfylltum öllum þeim reglum og skilyrðum sem hver og einn golfklúbbur kann að setja.
Ekki innifalið:
- Innanfélagsmót hjá Nesklúbbnum.
- Aðrir viðburðir sem sérstaklega eru auglýstir eingöngu fyrir félagsmenn, Þar með talið eru viðburðir á vegum kvennanefndar Nesklúbbsins.
Veittur verður takmarkaður fjöldi árið 2026.
Gildir ekki með öðrum tilboðum.
Birt með fyrirvara um breytingar og annað sem upp kann að koma ef það stangast á við aðrar samþykktir stjórnar Nesklúbbsins fyrir sumarið 2026.
