Nú hafa staðarreglur Nesvallarins verið uppfærðar með tilliti til ástand vallarins. Helsta breytingin er sú að nú eru ekki lengur heimilaðar hreyfingar sem námu allt að kylfulengd á öllum brautum og um púttershaus á flötum.
Í staðinn er nú tímabundin sérregla sem er eftirfarandi:
- „Þegar bolti leikmanns liggur innan almenna svæðisins á 1. – 3. – 7. og 8. braut og þar sem gras er slegið í brautarhæð eða neðar má leikmaðurinn taka vítalausa lausn, með því að merkja, lyfta, hreinsa og leggja aftur innan lausnasvæðis sem er skorkortslengd/griplengd. Það má ekki vera nær holu.“
Engar hreyfingar eru lengar heimilaðar á flötum.
Það er á ábyrgð hvers og eins leikmanns að kynna sér ávallt staðarreglur hvers vallar. Fyrir Nesvöllinn má bæði sjá staðarreglurnar í fullri lengd á skjá í skálanum og eins á heimasíðu klúbbsins (smella hér).
Vallarnefnd

