Nýjar staðarreglur

NesklúbburinnAlmennt, Póstlistar Aukaaðild, Póstlistar Full aðild

Nú hafa staðarreglur Nesvallarins verið uppfærðar með tilliti til ástand vallarins.  Helsta breytingin er sú að nú eru ekki lengur heimilaðar hreyfingar sem námu allt að kylfulengd á öllum brautum og um púttershaus á flötum.

Í staðinn er nú tímabundin sérregla sem er eftirfarandi:

  • „Þegar bolti leikmanns liggur innan almenna svæðisins á 1. – 3. – 7. og 8. braut og þar sem gras er slegið í brautarhæð eða neðar má leikmaðurinn taka vítalausa lausn, með því að merkja, lyfta, hreinsa og leggja aftur innan lausnasvæðis sem er skorkortslengd/griplengd.  Það má ekki vera nær holu.“

Engar hreyfingar eru lengar heimilaðar á flötum.

Það er á ábyrgð hvers og eins leikmanns að kynna sér ávallt staðarreglur hvers vallar.  Fyrir Nesvöllinn má bæði sjá staðarreglurnar í fullri lengd á skjá í skálanum og eins á heimasíðu klúbbsins (smella hér).

Vallarnefnd