Kæru félagar,
Af gefnu tilefni viljum við ítreka þær reglur um rástímabókanir (sjá hér) sem settar eru fram með það eitt að leiðarljósi að hugsa fyrst og fremst um hag félagsmanna klúbbsins. Við þurfum að gera miklu betur um að fylgja þeim reglum sem settar eru. Það er sérstaklega tvennt sem því miður hefur borið á undanfarið og við teljum rétt að ítreka.
* Það að „lána“ nafnið sitt til þess eins að festa rástímann, vitandi að þú ert ekki að fara að spila er bannað. Þetta er í alla staði óheiðarlegt og ósanngjarnt að taka þannig frá öðrum félagsmanni sem á að eiga forgang til þess að nýta þá rástíma sem í boði eru. Auðvitað geta komið upp undantekningar tilvik þar sem einhver kemst ekki en þegar þetta er ítrekað leikið eftir að þá er það einfaldlega ólöglegt.
*Við bókum okkur eingöngu á rástíma þegar við ætlum að spila en ekki bara til þess að festa rástímann og sjá svo til. Aftur er það bæði óheiðarlegt og ósanngjarnt gagnvart öðrum félögum.
Einnig viljum við minna á eftirfarandi:
* Frestur til þess að afbóka rástíma er að lágmarki tvær klukkustundir. Virðum þessi tímamörk og afbókum sjálf í gegnum golfbox ef svo óheppilega vill til að við getum ekki nýtt áður bókaðan rástíma.
*Það er skylda að staðfesta rástímann og munum við nú fara að fylgja enn meira eftir þeim reglum sem eru (sjá hér) og beita þeim viðurlögum sem sett eru í reglunum um rástímabókanir.
Tökum nú höndum saman og berum virðingu fyrir bæði þeim reglum sem settar eru og þannig um leið öðrum félagsmönnum í klúbbnum.
Stjórn Nesklúbbsins

