Skráningu í Meistaramót Nesklúbbsins 2026 fyrir forgjafar- og fullorðinsflokka lauk kl. 22.00 í gærkvöldi. Aldrei fleiri hafa skráð sig í mótið í þessum flokkum og eru 229 keppendur skráðir til leiks. Eins og oft áður eru flestir þátttakendur í 3. flokki karla en heilt yfir er góð skráning á flestum vígstöðvum
Það raðaðist þannig í flokkana að ljóst er að dagarnir verða ansi langir fyrstu þrjá daga mótsins og eftir 9 holur þá daga verður einhver bið, öðruvísi er ekki hægt að koma öllum að. Reynt verður eftir fremsta megni að halda uppi leikhraða úti á velli sem telst eðlilegur miðað við fjölda keppenda hverju sinni.
Áður auglýstir leikdagar allra flokka munu halda sér.
Annars er rástímataflan hér meðfylgjandi. Athugið að það eru tvær tímasetningar á töflunni. Tímasetningarnar lengst til vinstri eiga við fyrstu þrjá daga mótsins. Tímasetningarnar sem koma inn í miðja töfluna eiga við alla aðra daga.
Rástímar fyrir fyrsta keppnisdag, laugardaginn 4. júlí verða svo birtir í síðasta lagi kl. 15.00 á Golfbox og hér á síðunni á morgun, föstudag og þar má líka fylgjast með öllum úrslitum mótsins.
Við óskum öllum keppendum góðs gengis og umfram allt góðrar skemmtunar
Meistaramótsnefnd

