Skráningu í Meistaramótið 2026 lýkur í kvöld, miðvikudaginn 1. júlí kl. 22.00. Eftir að skráningu lýkur verður farið í að raða niður endanlegri rástímatöflu miðað við fjölda skráðra þátttakenda og kemur þá endanlega í ljós hvaða daga og ca. hvenær dags hver flokkur mun spila. Ráshópum hjá hverjum flokki verður þar af leiðandi ekki fjölgað eftir að skráningu lýkur í kvöld. Reikna má með að rástímataflan verði birt öðru hvoru megin við hádegi á morgun, fimmtudaginn 2. júlí.
Meistaramótsnefnd

