Meistaramót 2026 – met þátttaka

NesklúbburinnAlmennt

Skráningu í Meistaramót Nesklúbbsins 2026 fyrir forgjafar- og fullorðinsflokka lauk kl. 22.00 í gærkvöldi.  Aldrei fleiri hafa skráð sig í mótið í þessum flokkum og eru 229 keppendur skráðir til leiks.  Eins og oft áður eru flestir þátttakendur í 3. flokki karla en heilt yfir er góð skráning á flestum vígstöðvum

Það raðaðist þannig í flokkana að ljóst er að dagarnir verða ansi langir fyrstu þrjá daga mótsins og eftir 9 holur þá daga verður einhver bið, öðruvísi er ekki hægt að koma öllum að.  Reynt verður eftir fremsta megni að halda uppi leikhraða úti á velli sem telst eðlilegur miðað við fjölda keppenda hverju sinni.

Áður auglýstir leikdagar allra flokka munu halda sér.

Annars er rástímataflan hér meðfylgjandi.  Athugið að það eru tvær tímasetningar á töflunni.  Tímasetningarnar lengst til vinstri eiga við fyrstu þrjá daga mótsins.  Tímasetningarnar sem koma inn í miðja töfluna eiga við alla aðra daga.

Rástímar fyrir fyrsta keppnisdag, laugardaginn 4. júlí verða svo birtir í síðasta lagi kl. 15.00 á Golfbox og hér á síðunni á morgun, föstudag og þar má líka fylgjast með öllum úrslitum mótsins.

Við óskum öllum keppendum góðs gengis og umfram allt góðrar skemmtunar

Meistaramótsnefnd