Íslandsmót Golfklúbba haldið á næstu vikum

NesklúbburinnAlmennt

Íslandsmót Golfklúbba í fullorðinsflokkum verður haldið á næstu vikum.  Nesklúbburinn sendir lið í öllum keppnum sem eru eftirfarandi:

A-sveit kvenna: Keppt á Höfn í Hornafirði dagana 13.-15. ágúst, liðsstjóri er Þóra Sif Friðriksdóttir
A-sveit karla: Keppt í Vestmannaeyjum dagana 13.-15. ágúst, liðsstjóri er Steinn Baugur Gunnarsson
50 ára og eldri kvenna: Keppt í Keflavík dagana 20.-22. ágúst, liðsstjóri er Jórunn Þóra Sigurðardóttir
50 ára og eldri karla: Keppt í Sandgerði dagana 20.-22. ágúst, liðsstjóri er Nökkvi Gunnarsson
65 ára og eldri kvenna: Keppt í Grindavík 11.-12. ágúst, liðsstjóri er Hansína Jóhannesdóttir
65 ára og eldri karla: Keppt í Öndverðarnesi dagana 11.-12. ágúst, liðsstjóri er Eggert Eggertsson
75 ára og eldri karla: Keppt í Þorlákshöfn dagana 11.-12. ágúst, liðsstjóri er Þráinn Rósmundsson

Liðsskipan og nánari upplýsingar verða birtar síðar