Almyrkvinn 12. ágúst – aðstoð óskast

NesklúbburinnAlmennt, Póstlistar Aukaaðild, Póstlistar Full aðild

Kæru félagar,

Eins og flestum er eflaust kunnugt um að þá verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi, miðvikudaginn 12. ágúst, í fyrsta sinn frá því árið 1954. Allar upplýsingar um Almyrkvann má sjá með því að smella hér.

Á Nesvellinum mun hann sjást í rúma eina mínútu sem er það mesta á höfuðborgarsvæðinu.  Mikill viðbúnaður hefur staðið yfir bæði hjá Seltjarnarnesbæ og Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.  Til að mynda verður lokað fyrir alla bílaumferð frá bæði sundlauginni og eins á Norðurströnd á milli kl. 15.00 – 20.00.

Það er algjörlega óljóst hver mannfjöldinn verður sem mun leggja leið sína út á golfvöll en okkur hefur verið ráðlagt að gera ráð fyrir mikilli mannmergð.

Til að hafa allan vara á að þá ætlum við umfram allt að reyna að passa upp á flatir vallarins.  Við viljum því leita til ykkar félagsmanna um að koma og aðstoða okkur.  Við erum líka að reyna að fá þar til gerðan búnað til að girða þær af en eins og stakir hefur það ekki gengið upp.

Til þess að við getum gert okkur grein fyrir hversu mörg ykkar geta komið að þá hefur verið stofnaður viðburður á Golfbox sem heitir Almyrkvi 2026 (smella hér).  Við biðjum ykkur því að skrá ykkur þar ef þið hafið tök á.

Þið sem komið verðið náttúrulega í sannkölluðu VIP sæti og munið þannig að sjá almyrkvann lengst af öllum á höfuðborgarsvæðinu þannig að þetta verður bara gaman.

Allar nánari upplýsingar munu svo koma þegar nær dregur.

Kveðja,
Stjórnin