Opna COCA-COLA mótið fór fram um helgina. Mótið, sem er elsta opna golfmót á Íslandi, var fyrst haldið 1961 og hefur verið haldið allar götur síðan. Fyrirkomulagið er höggleikur án forgjafar og punktakeppni með forgjöf og voru veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í báðum flokkum ásamt nándarverðlaunum á par 3 brautum. Helstu úrslit urðu eftirfarandi:
Höggleikur án forgjafar:
1. sæti: Einar Long, GR – 68 högg
2. sæti: Elísabet Þóra Ólafsdóttir, NK – 69 högg
3. sæti: Kristján Björn Haraldsson, NK – 72 högg
Punktakeppni með forgjöf:
1. sæti: Þóra Sif Friðriksdóttir, NK – 42 punktar
2. sæti: Elísabet Þóra Ólafsdóttir, NK – 41 punktur
3. sæti: Vilhjálmur Alvar Halldórsson, NK – 40 punktar
Nándarverðlaun á par þrjú brautum voru hlutskörpust þau:
2./11. braut – Garðar Svansson, GVG – 2,08 metrar frá holu
5./14. braut – Bjartmar Birnir, GR – 2,32 metrar frá holu
9./18. braut – Elísabet Þóra Ólafsdóttir, NK – 3,15 metrar frá holu
Vinningshafar geta nálgast verðlaun sín á skrifstofu Nesklúbbsins á milli kl. 09.00 og 17.00

