Meistaramóti barna og unglinga er lokið eftir þrjá skemmtilega keppnisdaga á Nesvellinum. Alls tóku 42 krakkar þátt í mótinu sem er metþátttaka og gekk mótið mjög vel hjá okkar ungu kylfingum.
Keppt var í sex flokkum og voru þrjú efstu í hverjum flokki eftirfarandi:
Drengir 15–18 ára
- Heiðar Örn Heimisson – 232 högg
- Hjalti Garðar Matthíasson – 236 högg
- Mikael Dario Nunez Waage – 241 högg
Stúlkur 15–18 ára
- Elísa Georgsdóttir – 306 högg
- Sólveig Katrín Sigurgeirsdóttir – 334 högg
Drengir 12–14 ára
- Aron Bjarki Arnarsson – 222 högg
- Gunnar Helgi Kristinsson – 229 högg
- Jóhann Már Jóhannsson – 233 högg
Stúlkur 12–14 ára
- Barbara Mory Baldursdóttir – 269 högg
- Þórey Berta Arnarsdóttir – 294 högg
- Arnheiður Helga Hermannsdóttir – 308 högg
Drengir 11 ára og yngri
- Gabriel Hlíðkvist Rafnsson – 136 högg
- Benedikt Kári Gunnarsson – 141 högg
- Óliver Georgsson – 141 högg
Stúlkur 11 ára og yngri
- Saga Karítas Steinsdóttir – 125 högg
- Embla María Elíasdóttir – 201 högg
- Adda Björg Arnarsdóttir – 208 högg
Frábært var að sjá hversu fjölmennur hópur barna og unglinga tók þátt í ár og ekki síður hversu vel krakkarnir stóðu sig þessa þrjá daga.
Við óskum öllum keppendum til hamingju með mótið og þökkum þeim fyrir frábæra daga á Nesvellinum!
