Töluvert af golfsettum og golfkerrum var skilið eftir í settaskúrnum úti á golfvelli í sumar. Sumt af þessu hefur jafnvel staðið þar óhreyft í nokkur ár!
Við lokun skálans í byrjun október var allur búnaður sem eftir stóð færður á eftirfarandi staði:
- Golfsett: Færð á Nesvelli, inniaðstöðuna á Austurströnd 5.
- Golfkerrur: Færðar fyrir utan vélageymsluna á golfvellinum.
Eigendur eru hvattir til að sækja búnað sinn í síðasta lagi 1. nóvember.
Eftir þann tíma verður farið með ósóttan búnað sem er í góðu ástandi í Góða hirðinn, en búnaði sem er illa farinn verður fargað.
Við hvetjum alla félagsmenn sem hafa geymt búnað í settaskúrnum til að athuga hvort þeir eigi þar golfsett eða kerru og sækja það fyrir tilgreindan frest.
Opnunartími Nesvalla má sjá hér.

