Gleymdirðu setti eða kerru í skúrnum úti á velli?

NesklúbburinnAlmennt, Póstlistar Aukaaðild, Póstlistar Full aðild, Unglingastarf

Töluvert af golfsettum og golfkerrum var skilið eftir í settaskúrnum úti á golfvelli í sumar. Sumt af þessu hefur jafnvel staðið þar óhreyft í nokkur ár!

Við lokun skálans í byrjun október var allur búnaður sem eftir stóð færður á eftirfarandi staði:

  • Golfsett: Færð á Nesvelli, inniaðstöðuna á Austurströnd 5.
  • Golfkerrur: Færðar fyrir utan vélageymsluna á golfvellinum.

Eigendur eru hvattir til að sækja búnað sinn í síðasta lagi 1. nóvember.

Eftir þann tíma verður farið með ósóttan búnað sem er í góðu ástandi í Góða hirðinn, en búnaði sem er illa farinn verður fargað.

Við hvetjum alla félagsmenn sem hafa geymt búnað í settaskúrnum til að athuga hvort þeir eigi þar golfsett eða kerru og sækja það fyrir tilgreindan frest.

Opnunartími Nesvalla má sjá hér.