Styrktarmót unglinga verður haldið á Nesvellinum á sunnudaginn. Að öllu jafna hefur þetta mót verið haldið annan í hvítasunnu en sökum þess hve seint sá dagur ber upp var ákveðið að halda mótið núna um helgina. Mótið er opið fyrir alla kylfinga og verður hámarksforgjöf gefin – karlar: 24 og konur: 36. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í punktakeppni og fyrsta sæti í höggleik ásamt nándarverðlaunum á par 3 holum. Skráning er hafin á golf.is