Innheimta félagsgjalda 2017

Nesklúbburinn

Félagsgjöld fyrir árið 2017 voru samþykkt á aðalfundi klúbbsins og má sjá hér á síðunni undir umnk/gjaldskrá.  Að vanda verða félagsmönnum boðnar þrjár leiðir til að standa skil á félagsgjöldum sínum, nú fyrir árið 2017 og eru þær eftirfarandi:

1.  VISA/EURO: dreift á 6 jafnar greiðslur, fyrsta greiðsla í byrjun janúar.
2.  Einn greiðsluseðill: Eingreiðsla með gjalddaga 1. janúar 2017 og eindaga 15. janúar 2017.
3.  Fjórir greiðsluseðlar: Dreift á fjórar jafnar greiðslur, gjalddagar 1. janúar, 1. febrúar, 1. mars og 1. apríl og eindagar 15. hvers mánaðar.

Þeir sem vilja breyta greiðslufyrirkomulagi sínu frá fyrra ári þurfa að láta vita á netfangið nkgolf@nkgolf.is fyrir föstudaginn 9. desember – ekki verður tekið við breytingum eftir þann tíma.

ATH: það þarf EKKI að láta vita ef halda skal greiðslufyrirkomulagi óbreyttu frá fyrra ári

Mikilvægt: Eins og í fyrra verða ekki sendir út greiðsluseðlar nema að viðkomandi óski þess sérstaklega. Greiðsluseðlarnir munu því eingöngu birtast í heimabanka viðkomandi.  Óski félagsmenn þó sérstaklega eftir því að fá senda greiðsluseðla þarf að láta vita á nkgolf@nkgolf.is