Aðalfundur 2024 Nesklúbbsins

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir, Póstlistar karlar, Póstlistar konur

Aðalfundur Nesklúbbsins 2024

Stjórn Nesklúbbsins – Golfklúbbs Ness boðar hér með  til aðalfundar vegna starfsársins 28. nóvember 2023 til 31. október 2024.  Aðalfundurinn verður haldinn 28. nóvember 2024 í Hátíðarsal Gróttu á efri hæð íþróttahússins á Suðurströnd 8, Seltjarnarnesi og hefst kl. 19:30. 

Dagskrá:

  1. Fundarsetning
  2. Kjör fundarstjóra og fundarritara
  3. Lögð fram skýrsla formanns
  4. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
  5. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga.  Reikningar bornir undir atkvæði.
  6. Lagðar fram tillögur um breytingar á lögum félagsins ef um er að ræða.*
  7. Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga.
  8. Ákveðið árgjald félaga fyrir næsta starfsár.
  9. Kosning stjórnar og skoðunarmanna reikninga skv. 9. gr. laga.
  10. Önnur mál
  1. Samkvæmt 2.mgr. 9.gr. laga klúbbsins ber að tilkynna framboð til stjórnar með aðalfundarboði á heimasíðu.  Í kjöri eru formaður til eins árs og þrír stjórnarmenn til tveggja ára.

Fundargögn, sbr. framboð til stjórnar, lagabreytingar og ársskýrsla félagsins 2024, þ.m.t. ársreikningur verður birt á heimasíðu klúbbsins eigi síðar en fimmtudaginn 12. nóvember á netfangið nkgolf@nkgolf.is .  Fundurinn verður pappírslaus með öllu og er fundargestum er því ráðlagt að kynna sér gögnin þar.

Seltjarnarnesi 5. nóvember 2024
Stjórnin