Aðalfundur Nesklúbbsins á laugardaginn

Nesklúbburinn Almennt

 

AÐALFUNDUR NESKLÚBBSINS 2011

Aðalfundur Golfklúbbs Ness – Nesklúbbsins verður haldinn í golfskála félagsins laugardaginn 26. nóvember kl. 15.00.

Dagskrá:

  1. Fundarsetning kl. 15:00
  2. Kjör fundarstjóra og fundarritara
  3. Lögð fram skýrsla stjórnar
  4. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
  5. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga. Skýrsla og reikningar bornir undir atkvæði
  6. Lagðar fram tillögur til breytinga á lögum og / eða reglugerðum félagsins, ef um er að ræða
  7. Ákveðið árgjald félaga fyrir næsta starfsár
  8. Kosning stjórnar, varastjórnar og skoðenda, samkvæmt lögum félagsins
  9. Önnur mál