Aðalfundur Nesklúbbsins í dag

Nesklúbburinn Almennt

Aðalfundur Golfklúbbs Ness – Nesklúbbsins 2011 var haldinn í dag laugardaginn 26. nóvember. 68 félagar í klúbbnum sátu fundinn.  Lögð var fram skýrsla stjórnar og reikningar sem voru samþykktir samhljóða.

Helstu tölur úr rekstri klúbbsins voru að rekstrartekjur voru um 54 milljónir og rekstargjöld um 49 milljón.  Eftir framkvæmdir og fjárfestingar voru gjöld umfram tekjur  rúmlega fjórar milljónir.  Heildarskuldir klúbbsins eru bókfærðar um 2.800 þúsund.

Samþykkt var að meðaltali 5% hækkun á félagsgjöldum.

Allir stjórnarmeðlimir gáfu kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu og mun stjórn klúbbsins næsta starfsár því vera þannig skipuð: Eggert Eggertsson formaður, Áslaug Einarsdóttir, Geirarður Geirarðsson, Þorvaldur Jóhannesson og Arnar Friðriksson.  Varamenn í stjórn eru þau Jónas Hjartarson og Guðrún Valdimarsdóttir.