Kæru félagar,
Í gær var send út tilkynning með kynningu frambjóðenda til stjórnar á aðalfundi félagsins sem haldinn verður í kvöld. Það kom fram að aðalfundurinn færi fram í hátíðarsal Gróttu við Austurströnd. Hið rétta er að sjálfsögðu hátíðarsalur Gróttu sem er á Suðurströnd 8 eins og fram kom í fundarboðinu sjálfu og leiðréttist það hér með.