Ársskýrsla Nesklúbbsins 2023

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Kæru félagar,

Eins og fram hefur komið verður Aðalfundur Golfklúbbs Ness – Nesklúbbsins 2023 haldinn í Hátíðarsal Gróttu, Suðurströnd 8, þriðjudaginn 28. nóvember kl. 19.30.

Samkvæmt 3. lið 15.gr. laga félagsins verða endurskoðaðir reikningar bornir undir fundinn.  Ársskýrsla 2023 sem inniheldur m.a. ársreikning félagsins fyrir starfsárið 2023 hefur nú  verið birt á heimasíðu klúbbsins, nkgolf.is/um Nesklúbbinn/útgefið efni/ársreikningar eða með því að smella hér.

Það er gaman að segja frá því að viðbrögð félagsmanna við að senda inn myndir fyrir skýrsluna voru frábær.  Það var því miður ekki hægt að nota þær allar en engu að síður er skýrslan skreytt m.a. með fjölmörgum myndum frá félagsmönnum og svo að sjálfsögðu Guðmundu Kr. Jóhannessyni félagsmanni, ljósmyndara og eiganda ljósmyndastofunnar Nærmynd (naermynd.is).  Kunnum við öllum bestu þakkir fyrir og vonum að þið gefið ykkur tíma til þess að lesa yfir skýrsluna þar sem farið er yfir tímabilið 2023 í máli og myndum.

Stjórnin