Átt þú eitthvað í óskilamunum?

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir, Unglingastarf

Á Nesvöllum (Austurströnd 5) er töluvert magn af óskilamunum frá golfvellinum í sumar. Um er að ræða föt, húfur, skó, golfhanska, headcover og annað smádót. Óskilamunirnir verða geymdir til og með 20. desember en eftir þann dag verða þeir gefnir í Rauða krossinn eða fargað á viðeigandi hátt. Við hvetjum alla sem týndu einhverju á golfvellinum í sumar til að kíkja á Nesvelli, skoða óskilamunina og jafnvel taka æfingu í hermi eða á púttflötinni í leiðinni.