Bændaglíman 2020

Nesklúbburinn

Bændaglíma Nesklúbbsins 2020 verður haldin laugardaginn 26. september.  Bændaglíman sem er svo sannarlega mót á léttu nótunum og til gamans gert er jafnframt lokamót hvers sumars.  Því eru félagsmenn hvattir til þess að mæta og kveðja þetta merkilega en um leið frábæra golftímabil með stæl.

Bændur í ár verða eðalhjónin Fjóla Gruðrún Friðriksdóttir og Haraldur Jóhannsson sem ættu að vera flestum ef ekki öllum félagsmönnum kunn og ef ske kynni að svo er ekki, þá er þetta sko vettvangurinn til að kynnast þeim.

Dagskrá:

Mæting kl. 12.00

Þá verða bændur búnir að skipta þátttakendum í tvö lið með aðstoð mótsstjórnar.  Fjórir verða saman í holli og verður leikið tveggja manna (tveir í hvoru liði) Texas-scramble holukeppni með forgjöf.

12.30 – liðin tilkynnt og bændur munu bjóða upp á létta hressingu og hvetja sín lið til dáða.

Gengið er út frá því að spila 18 holur nema veður muni gefa sérstakt tilefni til annars og verður það þá tilkynnt nánar þegar nær dregur.

Af gömlum sið Nesklúbbsins mun liðið sem hefur tapað hingað til þurft að bregða sér í stutt þjónustuhlutverk í veislunni á eftir.  Vegna COVID er það því miður ekki hægt þannig að „refsing“ tapliðsins verður nánar útskýrð síðar.

Þátttökugjald aðeins kr. 5.000 pr. mann og er innifalið í verði bæði mótsgjald og matur

Matseðill: Eitthvað alveg geggjað að hætti Mario og co.

Skráning fer nú fram á golfbox og lýkur fimmtudaginn 24. september.

ATH. Skráningin mun ekki gefa rétta mynd af ráshópum þar sem að liðsstjórar munu velja í lið og er því eingöngu til að skrá kylfinga til leiks.