Nú fer hver að verða síðastur til að bóka sig í Bændaglímuna sem verður haldin á laugardaginn. Það er allt að fyllast í mótið, veðurspáin er góð þannig að mótið verður örugglega haldið. Nánari upplýsingar á Golfbox.
Að Bændaglímu lokinni mun veitingasalan loka á hefðbundnum opnunartímum. Mario og félagar ætla þó að hafa opið á góðviðrisdögum fram til ca. 20. október.
Munið að gera upp í veitingasölunni ef þið eruð þar í skuld og þið sem eigið inneign – þið hafið til laugardags til að taka það út.
Í október verður opið inn á salernin í skálanum út október og eins verður skálinn opinn fyrir félagsmenn á milli kl. 09.00 og frameftir degi ef veður leyfir.
ATHUGIÐ: Frá og með sunnudeginum 4. október er völlurinn EINGÖNGU opinn fyrir félagsmenn.