Byrjendanámskeið

Nesklúbburinn Almennt

Í maí verður boðið uppá námskeið fyrir byrjendur og þá sem eru að stíga sín fyrstu spor í íþróttinni.

Námskeiðið er samtals 10 klukkustundir og verður kennt á 5 dögum, 2 klukkustundir í senn. Kennt verður á eftirfarandi dögum: Þriðjudagur 8. maí kl. 19-21 – Fimmtudagur 10. maí kl. 19-21 – Þriðjudagur 15. maí kl. 19-21 – fimmtudagur 24. maí kl. 19-21 – fimmtudagur 31. maí 19-21.

Námskeiðið fer fram á æfingasvæði Nesklúbbsins.

Kennarar: Nökkvi Gunnarsson og Steinn Baugur Gunnarsson

Fjöldi nemenda er takmarkaður við 12.

Á námskeiðinu verður farið yfir pútt, vipp, pitch, glompuhögg, sveifluna, helstu golfreglur, siðareglur og leikskipulag.

Markmið: Að nemendur læri helstu grunnatriði íþróttarinnar ásamt grunnatriðum í golfreglum og siðareglum. Að námskeiði loknu ættu nemendur að vera tilbúnir til að fara út á völl og spila.

Innifalið í námskeiðsgjaldi er kennslugjald og æfingaboltar. 

Verð: 19.000.- kr.

Skráning með tölvupósti á netfangið nokkvi@nkgolf.is