Vegna ofsaveðursins sem Veðurstofan gerir ráð fyrir að gangi yfir landið á laugardaginn hefur ECCO mótinu verið frestað til mánudagsins 21. maí. Sá dagur er nú annar í hvítasunnu og því frídagur og veðurspáin hin vænlegasta.
Ákveðið hefur verið að láta rástímana standa, þ.e. þeir sem voru búnir að skrá sig í mótið á laugardaginn halda sínum rástímum á mánudaginn. Forföll skulu tilkynnast á nkgolf@nkgolf.is eða í síma 561-1930.
Opið verður fyrir rástímaskráningu í mótið til kl. 16.00 á sunnudaginn
Mótanefnd