Einnarkylfukeppni NK kvenna

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar konur

Þriðjudaginn 7. júní verður Einnarkylfukeppni NK kvenna haldin þar sem leiknar verða 9 holur með einni kylfu og pútter. Stórskemmtilegt mót fyrir allar konur sem eru meðlimir í Nesklúbbnum þar sem dagskráin er eftirfarandi:

Mæting er kl.17:00

Ræst verður út á öllum teigum kl.17:50 og spilaðar 9 holur.

Skráning hefst fimmtudaginn 2. júní kl. 09.00 og lýkur á miðnætti mánudaginn 6. júní.  Skráning fer fram á Golfbox og þar er einnig hægt að greiða þátttökugjald – það er skylda að greiða við skráningu.

Athugið, við verðum að setja hámarksfjölda í mótið og verða 66 konur í mótinu að hámarki – fyrstar koma, fyrstar fá.

Að móti loknu verður verðlunafhending og kvöldverður í golfskálanum.

Verðlaun eru fyrir 1. – 3. sæti í punktakeppni, nándarverðlaun á öllum par 3 brautum og lengsta upphafshögg á fyrstu braut.

Þátttökugjald í mót, gleði  & kvöldverð er kr. 4.900.-

Hlökkum til að sjá ykkur,
Bryndís, Elsa og Fjóla