Einnarkylfukeppni NK-kvenna 7. júní

Nesklúbburinn

Þriðjudaginn 7. júní verður Einnarkylfukeppni NK-kvenna haldin þar sem leiknar verða 9 holur með einni kylfu og pútter.  Stórskemmtilegt mót fyrir allar konur sem eru meðlimir í Nesklúbbnum þar sem dagskráin er eftirfarandi:  

Mæting er kl.17:00 í Happy Hour

Ræst verður út  á öllum teigum kl.18:00 og spilaðar 9 holur. Skráning hefst miðvikudaginn  1. júní kl. 08:00  á www.golf.is og lýkur á miðnætti mánudaginn  6. júní.  Einnig er hægt að skrá sig á skrifstofu klúbbsins milli 9-16 í síma 561-1930.  Athugið að þátttkendafjöldi er takmarkaður við 52 og dregið verður í holl.

Að móti loknu verður verðlunafhending og kvöldverður í golfskálanum. Boðið verður upp á ljúffenga Kjúklingasúpu frá Veislunni.

Verðlaun eru fyrir 1. – 3. sæti, nándarverðlaun á 2.   braut og lengsta upphafshögg á fyrstu braut.

Þátttökugjald í mót og happy hour & kvöldverð er kr. 3.900

Hlökkum til að sjá ykkur,
Kvennanefnd