Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL, Einvígið á Nesinu, verður nú haldið í 17. skipti á Nesvellinum mánudaginn 5. ágúst nk. Í ár mun DHL styrkja Dropann, styrktarfélag barna með sykursýki, um eina milljón króna.
Mótið verður með hefðbundnu sniði, þ.e. klukkan 10.00 leika keppendur 9 holu höggleik og kl. 13.00 hefst svo Einvígið (shoot-out). Einn kylfingur dettur út á hverri holu, þar til tveir berjast um sigurinn á 18. holu.
Venju samkvæmt er 10 af bestu kylfingum landsins boðið til leiks. Í ár eru systkini á meðal þáttakenda en það eru þau Ólafía Þórunn Kristinsdóttir sem er Íslandsmeistari kvenna í holukeppni og Alfreð Brynjar Kristinsson sem er klúbbmeistari GKG.
DHL hefur verið styrktaraðili mótsins frá því að það var fyrst haldið árið 1997 og ávallt styrkt félög eða samtök sem láta sér hag langveikra barna varða. Í ár er það Dropinn – styrktarfélag barna með sykursýki, sem fær eina milljón króna frá DHL. Dropinn hefur verið starfræktur síðan 1995 og er markmið félagsins að stuðla að velferð barna og unglinga með sykursýki, m.a. með sumarbúðum, fræðslu
Þátttakendur 2013
Alfreð Brynjar Kristinsson GKG Klúbbmeistari GKG 2013
Birgir Björn Magnússon GK Klúbbmeistari GK 2013
Birgir Leifur Hafþórsson GKG Íslandsmeistari í höggleik 2013
Björgvin Sigurbergsson GK Margfaldur Íslandsmeistari í höggleik
Hlynur Geir Hjartarson GOS Klúbbmeistari GOS 2013
Kristján Þór Einarsson GKJ Klúbbmeistari GKJ 2013
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR Íslandsmeistari kvenna í holukeppni 2013
Ólafur Björn Loftsson NK Klúbbmeistari Nesklúbbsins 2013
Þórður Rafn Gissurarson GR Shoot-out meistari 2012
Í höggleiknum um morguninn leika einnig tveir kylfingar um síðasta sætið í einvíginu. Það eru sigurvegarar opinna móta á Nesvellinum fyrr í sumar og eru þeir:
Rúnar Geir Gunnarsson NK Sigurvegari Opna Þjóðhátíðardagsmótsins
Nökkvi Gunnarsson NK Sigurvegari Opna Úrval-Útsýn mótsins
Sigurvegarar frá upphafi
1997 Björgvin Þorsteinsson
1998 Ólöf María Jónsdóttir
1999 Vilhjálmur Ingibergsson
2000 Kristinn Árnason
2001 Björgvin Sigurbergsson
2002 Ólafur Már Sigurðsson
2003 Ragnhildur Sigurðardóttir
2004 Magnús Lárusson
2005 Magnús Lárusson
2006 Magnús Lárusson
2007 Sigurpáll Geir Sveinsson
2008 Heiðar Davíð Bragason
2009 Björgvin Sigurbergsson
2010 Birgir Leifur Hafþórsson
2011 Nökkvi Gunnarsson
2012 Þórður Rafn Gissurarson