Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins, Einvígið á Nesinu, verður nú haldið í 23. skipti á Nesvellinum, mánudaginn 5. ágúst næstkomandi. Venju samkvæmt er 10 af bestu kylfingum landsins fyrr og síðar boðið til leiks og munu þau í ár spila í þágu BARNASPÍTALA HRINGSINS. Á Barnaspítalanum er veitt sérhæfð, fjölskyldumiðuð heilbrigðisþjónusta fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri þar sem í allri þjónustu er áhersla lögð á að greina þarfir og auka vellíðan skjólstæðinga
Einvígið verður með örlítið breyttu sniði í ár. Þannig verður enginn höggleikur um morguninn heldur mæta kylfingarnir beint í Einvígið sjálft (shoot-out) sem hefst klukkan 13.00. Þar dettur eins og áður einn kylfingur út á hverri holu, þar til tveir berjast að lokum um sigurinn á 9. braut.
FRUMHERJI og KEA HÓTEL eru styrktaraðilar mótsins árið 2019.
Þátttakendur 2019
AXEL BÓASSON
BIRGIR LEIFUR HAFÞÓRSSON
BJÖRGVIN SIGURBERGSSON
GUÐMUNDUR ÁGÚST KRISTJÁNSSON
GUÐRÚN BRÁ BJÖRGVINSDÓTTIR
HARALDUR FRANKLÍN MAGNÚS
NÖKKVI GUNNARSSON
ÓLAFÍA ÞÓRUNN KRISTINSDÓTTIR
ÓLAFUR BJÖRN LOFTSSON
RAGNHILDUR SIGURÐARDÓTTIR
Sigurvegarar frá upphafi
1997 Björgvin Þorsteinsson
1998 Ólöf María Jónsdóttir
1999 Vilhjálmur Ingibergsson
2000 Kristinn Árnason
2001 Björgvin Sigurbergsson
2002 Ólafur Már Sigurðsson
2003 Ragnhildur Sigurðardóttir
2004 Magnús Lárusson
2005 Magnús Lárusson
2006 Magnús Lárusson
2007 Sigurpáll Geir Sveinsson
2008 Heiðar Davíð Bragason
2009 Björgvin Sigurbergsson
2010 Birgir Leifur Hafþórsson
2011 Nökkvi Gunnarsson
2012 Þórður Rafn Gissurarson
2013 Birgir Leifur Hafþórsson
2014 Kristján Þór Einarsson
2015 Aron Snær Júlíusson
2016 Oddur Óli Jónasson
2017 Kristján Þór Einarsson
2018 Ragnhildur Sigurðardóttir