Einvígið á Nesinu á morgun

Nesklúbburinn

Hið árlega Einvígi á Nesinu (shoot-out) fer fram á Nesvellinum á morgun.  Tíu af bestu kylfingum mæta til leiks í þessu stórskemmtilega móti – félagsmenn og aðrir eru hvattir til þess að mæta og fylgjast með frábærum tilþrifum.

Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL Express á Íslandi, Einvígið á Nesinu, verður nú haldið í 20. skipti á Nesvellinum, mánudaginn 1. ágúst næstkomandi.  Venju samkvæmt er 10 af bestu kylfingum landsins fyrr og síðar boðið til leiks og munu þau í ár spila í þágu Umhyggju, félags sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra.

Mótið verður með hefðbundnu sniði, þ.e. klukkan 10.00 leika keppendur 9 holu höggleik og kl.13.00 hefst svo Einvígið sjálft, (shoot-out) þar sem einn kylfingur dettur út á hverri holu, þar til tveir berjast að lokum um sigurinn á 18. holu. 

DHL Express á Íslandi hefur verið styrktaraðili mótsins frá því að það var fyrst haldið árið 1997 og á þessum tíma styrkt félög eða samtök sem láta sér hag barna varða um hátt á annan tug milljóna króna.  Í ár, líkt og þegar mótið var haldið í fyrsta skiptið, er það Umhyggja sem nýtur góðs af og fær eina milljón króna frá DHL en Umhyggja er félag sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra.  

Þátttakendur 2016

Alfreð Brynjar Kristinsson          GKG        Klúbbmeistari GKG 2016
Arnór Ingi Finnbjörnsson           GR           Klúbbmeistari GR 2016
Aron Snær Júlíusson                 GKG       Sigurvegari Einvígisins 2015
Björgvin Sigurbergsson             GK         Margfaldur Íslandsmeistari
Hlynur Geir Hjartarson               GOS       Klúbbmeistari GOS 2016
Karlotta Einarsdóttir                     NK          Klúbbmeistari NK 2016
Kristján Þór Einarsson                GM           Klúbbmeistari GM 2016
Oddur Óli Jónasson                     NK           Klúbbmeistari NK 2016
Ragnhildur Sigurðardóttir         GR          Klúbbmeistari GR 2016
Úlfar Jónsson                                NK           Margfaldur íslandsmeistari

Sigurvegarar frá upphafi

1997      Björgvin Þorsteinsson
1998      Ólöf María Jónsdóttir
1999      Vilhjálmur Ingibergsson
2000      Kristinn Árnason
2001      Björgvin Sigurbergsson
2002      Ólafur Már Sigurðsson
2003      Ragnhildur Sigurðardóttir
2004      Magnús Lárusson
2005      Magnús Lárusson
2006      Magnús Lárusson
2007      Sigurpáll Geir Sveinsson
2008      Heiðar Davíð Bragason
2009      Björgvin Sigurbergsson
2010      Birgir Leifur Hafþórsson
2011      Nökkvi Gunnarsson
2012      Þórður Rafn Gissurarson
2013      Birgir Leifur Hafþórsson
2014      Kristján Þór Einarsson
2015     Aron Snær Júlíusson