Einvígið á Nesinu haldið í 30. sinn

NesklúbburinnAlmennt, Póstlistar Aukaaðild, Póstlistar Full aðild

Það verður sannkallað stórskotalið margra af bestu kylfingum Íslands þegar hið árlega góðgerðarmót Nesklúbbsins, EINVÍGIÐ Á NESINU, verður haldið mánudaginn 3. ágúst, á Frídegi verslunarmanna. Mótið er haldið í samstarfi við ARION BANKA og er þetta í þrítugasta skipti sem það fer fram. Venju samkvæmt er nokkrum af bestu kylfingum landsins boðið til leiks og leika þeir að þessu sinni í þágu BERGSINS (smella hér).

Nokkrir af bestu kylfingum landsins hafa þegar þegið boðið og staðfest komu sína og má þar nefna Gunnlaug Árna Sveinsson og Íslandsmeistarana í höggleik 2025, þau Dagbjart Sigurbrandsson og Guðrúnu Brá Björgvinsdóttir.

Við hvetjum alla til að koma og fylgjast með nokkrum fremstu kylfingum þjóðarinnar leika í þágu góðs málefnis.

Arion Banki, styrktaraðili Einvígsins á Nesinu, veitir í mótslok forsvarsaðila Bergsins ávísun upp á eina milljón króna.