Einvígið á Nesinu sýnt í kvöld og myndir frá Nærmynd

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Hið árlega góðgerðarmót Nesklúbbsins, Einvígið á Nesinu sem haldið var í samstarfi við sjóðastýringafélagið STEFNI verður sýnt á sjónvarpi Símans kl. 20.15 í kvöld (sjá trailer með því að smella hér) – hvetjum alla til að horfa á þennan skemmtilega þátt þar sem heimamaðurinn Bjarni Þór Lúðvíksson fór á kostum.

Einnig er hann Guðmundur KR. félagsmaður og eigandi ljósmyndastofunnar NÆRMYND búinn að setja inn fullt af myndum úr mótinu sem sjá með því að smella hér – alveg frábærar myndir sem vert er að skoða.