Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL Express á Íslandi, Einvígið á Nesinu, verður nú haldið í 20. skipti á Nesvellinum mánudaginn 1. ágúst næstkomandi. Venju samkvæmt er 10 af bestu kylfingum landsins boðið til leiks og munu þau í ár spila í þágu Umhyggju, félags sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra.
Mótið verður með hefðbundnu sniði, þ.e. klukkan 10.00 leika keppendur 9 holu höggleik og kl. 13.00 hefst svo Einvígið (shoot-out). Einn kylfingur fellur út á hverri holu, þar til tveir berjast um sigurinn á 18. holu.
DHL á Íslandi hefur verið styrktaraðili mótsins frá því að það var fyrst haldið árið 1997 og ávallt styrkt félög eða samtök sem láta sér hag barna varða. Í ár er það eins og kom fram ofar Umhyggja sem nýtur góðs af og fær eina milljón króna frá DHL en Umhyggja er félag sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra.
Þátttakendur 2016
Alfreð Brynjar Kristinsson |
GKG |
Klúbbmeistari GKG 2016 |
Arnór Ingi Finnbjörnsson |
GR |
Klúbbmeistari GR 2016 |
Aron Snær Júlíusson |
GKG |
Sigurvegari Einvígisins 2015 |
Björgvin Sigurbergsson |
GK |
Margfaldur Íslandsmeistari |
Hlynur Geir Hjartarson |
GOS |
Klúbbmeistari GOS 2016 |
Karlotta Einarsdóttir |
NK |
Klúbbmeistari NK 2016 |
Kristján Þór Einarsson |
GM |
Klúbbmeistari GM 2016 |
Oddur Óli Jónasson |
NK |
Klúbbmeistari NK 2016 |
Ragnhildur Sigurðardóttir |
GR |
Klúbbmeistari GR 2016 |
Úlfar Jónsson |
GKG |
Kylfingur 20. aldarinnar |
Sigurvegarar frá upphafi
1997 Björgvin Þorsteinsson
1998 Ólöf María Jónsdóttir
1999 Vilhjálmur Ingibergsson
2000 Kristinn Árnason
2001 Björgvin Sigurbergsson
2002 Ólafur Már Sigurðsson
2003 Ragnhildur Sigurðardóttir
2004 Magnús Lárusson
2005 Magnús Lárusson
2006 Magnús Lárusson
2007 Sigurpáll Geir Sveinsson
2008 Heiðar Davíð Bragason
2009 Björgvin Sigurbergsson
2010 Birgir Leifur Hafþórsson
2011 Nökkvi Gunnarsson
2012 Þórður Rafn Gissurarson
2013 Birgir Leifur Hafþórsson
2014 Kristján Þór Einarsson
2015 Aron Snær Júlíusson