Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins, Einvígið á Nesinu, verður nú haldið í 27. skipti og eins og undanfarin ár í samstarfi við sjóðastýringarfélagið STEFNI. Mótið verður eins og áður haldið á frídegi Verslunarmanna, nú mánudaginn 7. ágúst. Venju samkvæmt er nokkrum af bestu kylfingum landsins fyrr og síðar boðið til leiks og munu þau í ár leika í þágu Félags áhugafólks um Downs-heilkenni. Félag áhugafólks um Downs-heilkenni veitir fræðslu til foreldra og almennings um heilkennið. Áhersla er lögð á að vekja athygli á lífi, starfi, hæfileikum og draumum einstaklinga með Downs heilkenni í samfélaginu.
Einvígið hefst stundvíslega kl. 13.00 og verður fyrirkomulagið í Einvíginu þannig að fyrstu tvær holurnar í einvíginu verða leiknar með því sniði að sá fellur úr leik á fyrstu braut sem er fjærst holu eftir þrjú högg og tvö högg á braut nr. 2. Eftir það verður farið í hið hefðbundna “shoot-out” fyrir þá sem eru með hæsta skor á viðkomandi braut.
Við hvetjum alla áhugasama til að koma og fylgjast með sumum af okkar fremstu kylfingum á Nesvellinum leika í þágu góðs málefnis.
Það er eins og áður sagði sjóðastýringarfélagið STEFNIR hf. sem er styrktaraðili Einvígisins á Nesinu í ár og mun í mótslok afhenda Félagi áhugafólks um Downs-heilkenni ávísun upp á eina milljón króna.
Þátttakendur í Einvíginu á Nesinu 2023
Aron Snær Júlíusson
Birgir Björn Magnússon
Guðmundur Ágúst Kristjánsson
Gunnlaugur Árni Sveinsson
Heiðrún Anna Hlynsdóttir
Kristján Þór Einarsson
Magnús Máni Kjærnested
Markús Marelsson
Perla Sól Sigurbrandsdóttir
Ragnhildur Kristinsdóttir
Sigurvegarar frá upphafi:
1997 Björgvin Þorsteinsson
1998 Ólöf María Jónsdóttir
1999 Vilhjálmur Ingibergsson
2000 Kristinn Árnason
2001 Björgvin Sigurbergsson
2002 Ólafur Már Sigurðsson
2003 Ragnhildur Sigurðardóttir
2004 Magnús Lárusson
2005 Magnús Lárusson
2006 Magnús Lárusson
2007 Sigurpáll Geir Sveinsson
2008 Heiðar Davíð Bragason
2009 Björgvin Sigurbergsson
2010 Birgir Leifur Hafþórsson
2011 Nökkvi Gunnarsson
2012 Þórður Rafn Gissurarson
2013 Birgir Leifur Hafþórsson
2014 Kristján Þór Einarsson
2015 Aron Snær Júlíusson
2016 Oddur Óli Jónasson
2017 Kristján Þór Einarsson
2018 Ragnhildur Sigurðardóttir
2019 Guðmundur Ágúst Kristjánsson
2020 Haraldur Franklín Magnús
2021 Guðmundur Ágúst Kristjánsson
2022 Bjarni Þór Lúðvíksson