Einvígið á Nesinu verður haldið á mánudaginn

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins, Einvígið á Nesinu, verður nú haldið í 27. skipti og eins og undanfarin ár í samstarfi við sjóðastýringarfélagið STEFNI.  Mótið verður eins og áður haldið á frídegi Verslunarmanna, nú mánudaginn 7. ágúst.  Venju samkvæmt er nokkrum af bestu kylfingum landsins fyrr og síðar boðið til leiks og munu þau í ár leika í þágu Félags áhugafólks um Downs-heilkenni. Félag áhugafólks um Downs-heilkenni veitir fræðslu til foreldra og almennings um heilkennið. Áhersla er lögð á að vekja athygli á lífi, starfi, hæfileikum og draumum einstaklinga með Downs heilkenni í samfélaginu.

Einvígið hefst stundvíslega kl. 13.00 og verður fyrirkomulagið í Einvíginu þannig að fyrstu tvær holurnar í einvíginu verða leiknar með því sniði að sá fellur úr leik á fyrstu braut sem er fjærst holu eftir þrjú högg og tvö högg á braut nr. 2.  Eftir það verður farið í hið hefðbundna “shoot-out” fyrir þá sem eru með hæsta skor á viðkomandi braut.

Við hvetjum alla áhugasama til að koma og fylgjast með sumum af okkar fremstu kylfingum á Nesvellinum leika í þágu góðs málefnis.

Það er eins og áður sagði sjóðastýringarfélagið STEFNIR hf. sem er styrktaraðili Einvígisins á Nesinu í ár og mun í mótslok afhenda Félagi áhugafólks um Downs-heilkenni ávísun upp á eina milljón króna.

Þátttakendur í Einvíginu á Nesinu 2023

Aron Snær Júlíusson
Birgir Björn Magnússon
Guðmundur Ágúst Kristjánsson
Gunnlaugur Árni Sveinsson
Heiðrún Anna Hlynsdóttir
Kristján Þór Einarsson
Magnús Máni Kjærnested
Markús Marelsson
Perla Sól Sigurbrandsdóttir
Ragnhildur Kristinsdóttir

Sigurvegarar frá upphafi:

1997      Björgvin Þorsteinsson
1998      Ólöf María Jónsdóttir
1999      Vilhjálmur Ingibergsson
2000      Kristinn Árnason
2001      Björgvin Sigurbergsson
2002      Ólafur Már Sigurðsson
2003      Ragnhildur Sigurðardóttir
2004      Magnús Lárusson
2005      Magnús Lárusson
2006      Magnús Lárusson
2007      Sigurpáll Geir Sveinsson
2008      Heiðar Davíð Bragason
2009      Björgvin Sigurbergsson
2010      Birgir Leifur Hafþórsson
2011      Nökkvi Gunnarsson
2012      Þórður Rafn Gissurarson
2013      Birgir Leifur Hafþórsson
2014      Kristján Þór Einarsson
2015       Aron Snær Júlíusson
2016       Oddur Óli Jónasson
2017       Kristján Þór Einarsson
2018       Ragnhildur Sigurðardóttir
2019       Guðmundur Ágúst Kristjánsson
2020       Haraldur Franklín Magnús
2021       Guðmundur Ágúst Kristjánsson
2022       Bjarni Þór Lúðvíksson