Birgir Björn sigraði Einvígið á Nesinu

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Einvígið á Nesinu (Shoot out) góðgerðarmótið fór fram á Nesvellinum í frábæru veðri í dag.  Þetta var í 27. skiptið sem mótið er haldið og eins og ávallt var það haldið til styrktar góðu málefni, nú Félagi áhugafólks um Downs-heilkennni.  Félag ághugafólks um Downs-heildkenni veitir fræðslu til foreldra og almennings um Downs heilkennið.  Áhersla er lögð á að vekja athygli á lífi, starfi, hæfileikum og draumum einstaklinga með Downs heilkenni í samfélaginu.  Sigurvegari mótsins varð að lokum Birgir Björn Magnússon eftir æsispennandi lokaholu þar sem hann sigraði Gunnlaug Árna Sveinsson í „shoot-outi“ á 9. braut.

Að móti loknu var verðlaunaafhending og keppendum afhendur þakklætisvottur fyrir sitt framlag til málefnisins.  Mótið er eins og áður sagði fyrst og fremst góðgerðarmót og afhentu þau Þorsteinn Guðjónsson formaður Nesklúbbsins og Kristbjörg Kristinsdóttir Fjármálastjóri STEFNIS sem var styrktaraðili mótsins í ár, þeim Örnu Dís og Nóa Sæ fulltrúum félags áhugafólks um Downs heilkenni ávísun að upphæð kr. 1.000.000.-

Úrslit í Einvíginu 2023 urðu eftirfarandi:

  1. sæti: Birgir Björn Magnússon
  2. sæti: Gunnlaugur Árni Sveinsson
  3. sæti: Markús Marelsson
  4. sæti: Guðmundur Ágúst Kristjánsson
  5. sæti: Ragnhildur Kristinsdóttir
  6. sæti: Perla Sól Sigurbrandsdóttir
  7. sæti: Magnús Máni Kjærnested
  8. sæti: Kristján Þór Einarsson
  9. sæti: Aron Snær Júlíusson
  10. sæti: Heiðrún Anna Hlynsdóttir