Kæru félagar,
Sumarið er loksins komið
Eins og við þekkjum er Hreinsunardagur Nesklúbbsins hinn sanni sumarboði, en hann fór fram laugardaginn 11. maí síðastliðinn. Mig langar fyrst og fremst að þakka kærlega öllum þeim rúmlega 100 sjálfboðaliðum sem mættu og lögðu hönd á plóg. Þetta frábæra framlag, en við erum að tala um geysilegt vinnuframlag sem hefur bein áhrif á bæði gæði og rekstur vallarins og nærumhverfið. Þetta gerði okkur kleift að opna völlinn þegar daginn eftir, á sunnudag, og er hann nú opinn félagsmönnum. Þetta er Nesklúbburinn í hnotskurn og gerir golfklúbbinn okkar sérstakan.
Völlurinn lítur vel út
Þeir sem hafa komið út á völl undanfarna daga eru sammála um að völlurinn líti vel út. Það er greinilegt að Stuart vallarstjóri og hans teymi eru að gera góða hluti. Eins og alltaf viljum við þó biðja ykkur að leggja ykkar af mörkum, setjið torfur í kylfuför, lagið boltaför á flötum, og rakið eftir ykkur í glompunum. Þetta eru lítil en mikilvæg framlög sem skipta sköpum á endanum.
Stórt framkvæmdaverkefni
Stórt og spennandi verkefni hefur nýlega verið lokið, en búið er að klæða að göngustígnum á 7. braut, bak við 1. flöt og áfram á 2. og 3. braut. Í síðustu viku var sáð í moldina og nú vonum við bara að sprettan verði góð. Þessi aðgerð hefur þegar sannað sig og við vonum innilega að með þessum umbótum dragi úr líkum á því að efni berist niður á völlinn í miklum sjógangi. Eins og fram kom tilkynningu frá vallarnefnd í síðustu viku (sjá hér) er það mikið undir okkur kylfingum komið hvernig til mun takast með framhaldið. Stuart vallarstjóri hefur lagt gríðarlega áherslu á að ekki sé stigið inn á moldina á meðan fræin eru ná festu og að spíra. Ég bið ykkur því sérstaklega að taka það til ykkar sem fram kom í tilkynningunni frá Vallarnefnd í síðustu viku og þó það muni eflaust kosta einhverja golfbolta að þá eru svo miklir hagsmunir í húfi.
„Braut í fóstri”
Síðasta sumar var kynnt til sögunnar verkefnið „Braut í fóstri” og tókst það svo vel að við erum ánægð að geta sagt ykkur að það verður endurtekið í sumar. Þetta er frábær leið fyrir félaga að tengjast vellinum enn frekar og gefa af sér. Við hvetjum ykkur eindregið til að taka virkan þátt, það er gefandi að sjá braut sína blómstra. Sjá allt um „braut í fóstri“ með því að smella hér
Kosningaár
Ég vil í lokin geta þess að í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga sem nú er nýlokið óskuðu allir framboðsflokkarnir eftir fundi með Nesklúbbnum. Við höfum átt góða og uppbyggilega fundi með þeim öllum og það er ánægjulegt að sjá að Nesklúbburinn er þarna á forgangslista hjá þeim sem vilja fara með völdin í sveitarfélaginu. Við vonum svo sannarlega að þetta verði til að opna samtalið enn frekar í framhaldi.
Að lokum vil ég óska ykkur allra gleðilegs golf-sumars. Sjáumst á vellinum!
Með bestu kveðju,
Þorsteinn Guðjónsson
Formaður Nesklúbbsins

