Frábær skráning í Meistaramótið

Nesklúbburinn

Skráningu í Meistaramótið 2016 lauk nú í kvöld á slaginu 22.00.  Það má með sanni segja að meðlimir klúbbsins hafi heldur betur tekið við sér í skráningu á síðustu metrunum þar sem að heildarfjöldinn endaði í 195 þátttakendum sem er frábært.

Framundan er því umfram allt stórskemmtilegt Meistaramót, veðurspáin er mjög góð og völlurinn hefur líklega sjaldan verið betri.

Á morgun föstudag, mun eftir hádegið verða sett fram ný og uppfærð rástímatafla sem tekur mið af skráningu í mótið og fjölda þátttakenda í hverjum flokki.  Seinnipartinn munu svo rástímar fyrir fyrsta keppnisdag, laugardaginn 2. júlí verða birtir hér á heimasíðunni og á golf.is

Megi öllum ganga vel og góða skemmtun

Áfram Ísland