Tímamörkin fyrir fyrstu umferð í ECCO Bikarmeistaramótinu áttu að renna út í dag en hafa verið framlengd um viku. Er þetta gert vegna slæms veðurs í síðustu viku sem gerði það að verkum að afar fáir leikir voru leiknir þá vikuna. Tímamörk umferða verða því sem hér segir:
1. umferð – lokið eigi síðar en 6. júní
2. umferð – lokið eigi síðar en 13. júní
3. umferð – lokið eigi síðar en 20. júní
4. umferð – lokið eigi síðar en 27. júní
5. umferð – lokið eigi síðar en 4. júlí
Mótanefnd