Sumarið mun koma og þá er sko eins gott að vera tilbúin/n. Þarftu að fínpússa sveifluna eða er kannski bara allt í skrúfunni og þú þarft að koma þér aftur á sporið? Ef annaðhvort er, nú eða bara að þú vilt ná enn lengra í golfinu, þá starfa við golfkennslu hjá Nesklúbbnum tveir snillingar sem geta hjálpað þér. Þeir Guðmundur og Magnús bjóða upp á einkakennslu jafnt sem hópakennslu og er hægt að bóka tíma hjá þeim í bæði síma og með því að senda þeim tölvupóst. Allar nánari upplýsingar er hægt að sjá í meðfylgjandi mynd.