Happdrætti til styrktar æfingaferð ungra kylfinga Nesklúbbsins til Spánar

NesklúbburinnAlmennt, Póstlistar Aukaaðild, Póstlistar Full aðild

Kæru félagsmenn,

Ungir kylfingar í barna- og unglingastarfi Nesklúbbsins halda til Spánar í æfingaferð til Valle del Este næsta vor.

Af því tilefni hafa iðkendurnir okkar farið af stað með happdrætti til að safna fyrir ferðinni og hjálpa til við að standa straum af kostnaði.

Yfir 100 glæsilegir vinningar eru í boði að heildarverðmæti yfir eina milljón króna! Allur ágóði af miðasölunni rennur til ungu kylfinganna okkar.

Miðaverð:

  • 1 miði – 3.000 kr.
  • 3 miðar – 7.500 kr.

Dregið verður í happdrættinu 26. nóvember og verða vinningsnúmer birt á nkgolf.is.

Krakkarnir eru þessa dagana að ganga í hús á Seltjarnarnesi og í Vesturbæ Reykjavíkur til að selja happdrættismiða. Við hvetjum félagsmenn til að taka vel á móti þeim og styðja við bakið á krökkunum.

Einnig er hægt að panta miða með því að senda tölvupóst á steinn@nkgolf.is . Ágóðinn af þeim miðum rennur sömuleiðis allur til kylfinganna okkar.

Eftirtaldir aðilar hafa stutt happdrættið með vinningum og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir:

  1. holan · Arnaldur Indriðason · Billjardbarinn · Björnsbakarí · Calmo · CCEP · Craft verslun · Elsa Nielsen · Fló · Gamla apótekið · Golfskálinn · Good Good · Grandi 101 · Guli miðinn · Hagavagninn · Herragarðurinn · Hótel Akureyri · Hraðlestin · H-verslun · Ison heildverslun · ÍSAM · Ísol · Kjöthöllin · Laundromat · Lóður · Macron · Málning · Nesvöllur · Officina · Orkan · Perlan · Pizza107 · Plantan kaffihús · Samsonite · Sonax · Sækot · TBR · Titleist · Tix · Tres Logos · VAXA · Viðskiptablaðið · Þórborg · Örninn.

Við þökkum kærlega fyrir stuðninginn!

Áfram NK! ⛳