Herrakvöld Nesklúbbsins verður nú haldið í annað sinn föstudaginn 25. febrúar næstkomandi. Í fyrra heppnaðist kvöldið ákaflega vel og ríkir því mikil eftirvænting félagsmanna fyrir kvöldið í ár. Veislustjóri kvöldsins verður Gunnar Hansson, leikari og fyrrverandi félagsmaður Nesklúbbsins. Ræðumaður kvöldsins verður knattspyrnuþjálfarinn Guðjón Þórðarson. Þá verður boðið upp á glæsilegt veisluhlaðborð að hætti Kristjáns, happdrætti til styrktar unglingastarfi klúbbsins og fleiri skemmtiatriði.
Fordrykkur hefst kl. 18.30 og er innifalinn í verði.
Miðaverð aðeins krónur 4.900
Ath. að það er takmarkaður sætafjöldi og fyrstir koma fyrstir fá.
Skráning á netfangið: haukur@nkgolf.is eða í síma 860-1358